Jæja þá er komið að því....tímabilið að byrja
Við höfum farið í gegnum erfiðan vetur bæði líkamlega og andlega. Það jákvæða er að við virðumst vera að toppa á réttum tíma. Við höfum síðustu 3 vikur létt álagið og menn því að skerpast allir. Tveir síðustu leikir, á móti Hetti og Fjarðabyggð hafa verið nokkuð góðir að okkar hálfu þrátt fyrir 3-2 og 2-1 tap.
Á miðvikudag, 16.maí, spilum við okkar fyrsta leik í móti Fjarðabyggð í bikarkeppni KSÍ. Við höfum spilað við þá nokkuðu oft síðustu ár þannig að við vitum nákvæmlega hvað við erum að fara útí. Þeir eru deild ofar en við og spáð toppbaráttu en við komum til með að láta þá hafa vel fyrir hlutunum.
Laugardaginn 19.maí kl 14.00 á Selfossvelli er síðan fyrsti leikur okkar í deildinni við Árborg. Þeir spiluðu í 2.deild í fyrra þannig að um topplið er að ræða. Okkar riðill virðist vera mjög sterkur þannig að það er mikilvægt að byrja vel.
Ég hvet alla til að standa bak við strákana og stelpurnar í sumar. Það er mikilvægt að Sindri fari að stíga upp og við trúum því að það gerist í sumar með góðum stuðning bæjarbúa.
Áfram Sindri
Óli Stefán








