Forsíða

Lokahóf

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Lokahóf Sindra verður á laugardaginn í Pakkhúsinu. Þar verður tímabil okkar gert upp og leikmenn verðlaunaðir ásamt góðum mat og skemmtiatriðum. Vonandi koma sem flestir og skemmta sér með okkur.

Óli Stefán

 

Úrslit að hefjast

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Jæja þá er riðlakeppni lokið og ljóst, reyndar fyrir þónokkru síðan að við vinnum riðilinn. Við höfum þó ekki verið á sama flugi og fyrr í sumar en þó verið að spila nokkuð vel. Það hefur satt best að segja verið nokkur kúnst að halda mönnum á tánum og vegna þess að langt hefur verið milli leikja og lítið undir í leikjum. Það jákvæða er þó að við höfum náð að nýta hópinn vel og margir ungir leikmenn að fá tækifæri. Í leik okkar við Einherja síðasta laugardag spiluðu fjórir 2.flokks strákar og einn úr 3.flokki. Þeir stóðu sig vægast sagt frábærlega og áttum við svo skilið að klára þann leik. Eftir stendur þó reynsla sem liðið fær og yngri leikmenn að verða betri.

Við erum núna komnir í alvöruna þar sem ekkert má út af bregða. Hópurinn er á loka undirbúning fyrir úrslitin sem hefjast á laugardaginn þar sem við spilum við KB úr Breiðholtinu. KB hefur á að skipa mjög góðum leikmönnum sem hafa komist í úrslit síðustu ár og voru til að mynda hársbreidd frá því að fara upp í fyrra. Það er því ljóst að við þurfum á toppleik að halda til að leggja þá af velli. 

Hópurinn er að mestu klár þó að það standi tæpt með Alex fyrir laugardaginn. Við förum suður í Grindavík (mekka fótboltans á Íslandi) á föstudag þar sem við tökum æfingu og gistum. Leikurinn er síðan á gervigrasinu á Leiknissvæðinu kl 14.00 á laugardaginn og biðlum við til brottfluttra Hornfirðinga að láta sjá sig.

Óli Stefán

Síðast uppfært ( Mánudagur, 22. ágúst 2011 23:43 )
 

Sindri - Magni

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Eftir langt frí frá leikjum þá hefst lokasprettur fyrir úrslitakeppnina. Við eigum tvo leiki eftir í riðlinum, Magna heima og Einherja úti.

Magnamenn koma hingað á laugardaginn og freista þess að ná í þrjú stig sem þeir þurfa í baráttunni um annað sætið. Við hins vegar verðum að stilla okkar strengi eftir tap í síðasta leik og verðum að vera í toppformi þennan tíma sem eftir er.

Það var flott stemmning á síðasta heimaleik og vona ég að svo verði einnig á laugardaginn. Leikurinn byrjar kl 13.00 en ekki 14.00 eins og hann átti upphaflega að hefjast.

Óli Stefán

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 11. ágúst 2011 23:32 )
 

Fyrsta tapið staðreynd

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Við spiluðum í gær við Leikni á Fásrúðsfirði í blíðskaparveðri. Nokkuð var um breytingar á liðinu en þeir Keli-Kobbi-Einar smári og Atli A voru ekki með en engu að síður stilltum við upp sterku liði. 

Við spiluðum frábæran fyrri hálfleik sem fer í bækurnar hjá mér sem einn sá besti af okkar hálfu í sumar. Við náðum þó ekki að nýta okkur yfirburði nægilega vel en vorum þó yfir 1-0 í hálfleik. Sú forusta var skammgóður vermir því við fengum á okkur tvö mörk úr föstum leikatriðum í seinni hálfleik og töpuðum 2-1. 

Við tökum ekkert af Leiknismönnum því þeir börðust vel fyrr sigrinum og úr því að við klárum ekki færin okkar sem voru í tugatali þá eiga þeir sigurinn skilið. Með þessum sigri þeirra setja þeir spennu í riðilinn um baráttu um annað sæti og er bara gaman af því. 

Óli Stefán

 

 

Komnir í úrslitakeppnina.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Með því að sigra Einherja á dögunum tryggðum við okkur sæti í úrslitunum sem byrja 27.ágúst. Við fylgdum þeim sigri síðan eftir með sigri á Huginn á útivelli. Við unnum þann leik 5-3 með mörkum Sevals 4 og Kela. Við fengum full mikið af mörkum á okkur en jákvætt að sigra svona leiki. 

Nú er það bara að klára þennan riðil á fullu og stefna að því að ná þeim stigum sem eru í pottinum. Við erum einnig að nýta hópinn okkar vel og ungir strákar að fá tækifæri sem er jákvætt. Ingvi Sigurðsson fæddur 1995 (árið sem ég spilaði fyrsta úrvalsdeildarleikinn minn) lék t.d sínar fyrstu mínutur á móti Huginn og stóð sig vel. 

Strákarnir tóku þá ákvörðun að eyða verslunarmannahelginni saman og taka æfingar þá helgi til að vera betur búnir í úrslitakeppnina sem er frábært framtak hjá þeim og segir mikið um metnað þeirra. Við ætlum því að taka góða helgi saman uppí Lóni.

Ég verð að lokum að hrósa Sigfinni Björns og félögum í stuðningsmannaklúbbnum Berta bæjó. Framtak þeirra að mæta á leiki og láta vel í sér heyra er til fyrirmyndar og miklu skemmtilegra að bæði spila leikina og horfa á þá. Vonum bara að sem flestir fylgi þeim og taki þátt í þessu með þeim.

Óli Stefán

 

 

Magni og Einherji

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Við spiluðum síðustu helgi við gott lið Magna á Grenivík síðustu helgi og unnum þann leik 3-1. Magni er í öðru sæti deildarinnar og eftir að Draupnir lagði upp laupana var forskot okkar á Magna aðeins 4 stig. Við erum því komnir með 19 stig eða heilum 7 stigum á undan Magna með þessu sigri og það sem meira er þá erum við 10 stigum á undan Einherja sem er í þriðja sæti.

Einherji eru einmitt mótherjar okkar á laugardaginn og með sigri í þeim leik tryggjum við okkur í 8 liða úrslitin. Einu stigin sem hafa tapast voru einmitt á móti Einherja á Vopnafirði fyrr í sumar. Sá leikur endaði 2-2 eftir mikinn baráttu leik. Þjálfari Einherja er Skotinn David Hannah sem spilar einnig með þeim. Þeir eru með þrjá aðra skota í liðinu og svo öflugan borsnískan markmann. Einnig eru í liðinu sprækir íslenskir strákar þannig að við gerum okkur grein fyrir að um hörku leik verður að ræða. 

Mætingin á völlinn hefur verið með eindæmum góð í sumar og vonum við að svo verði áfram. Sjáumst því á vellinum á laugardaginn.

Óli Stefán

 

Toppslagur

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Næsta laugardag, 9.júlí kl. 14.00 eigum við leik við Magna á Grenivík. Ljóst er að um toppslag í riðlinum er að ræða enda Magnamenn í öðru sæti þremur stigum á eftir okkur reyndar búnir að spila einum leik meira en við. Síðasti leikur milli þessara liða endaði 2-0 hér á Sindravöllum en Keli og Atli H skoruðu mörk okkar manna. 

Magna hefur gengið upp og ofan í síðustu leikjum en lykilmenn þeirra hafa verið meiddir. Þeir unnu þó Huginn í síðasta leik en þaráður höfðu þeir gert jafntefli við Draupni og tapað á móti Einherja. 

Við erum eins og er í ágætis stöðu og góð úrslit fyrir norðan fara langt með okkur í átt að takmarki okkar, að ná í úrslitakeppnina. 

Óli Stefán

 
Síða 1 af 30

Næsti Sindraleikur

Íslandsmót - 3. deild karla D riðill

Team
Points
1 Sindri 23
2 Magni 13
3 Leiknir F. 9
4 Einherji 9
5 Huginn 3

Búnir Sindraleikir

16-07-2011 14:00
Sindri 4 : 1 Einherji
09-07-2011 14:00
Magni 1 : 3 Sindri
26-06-2011 17:00
Sindri 3 : 1 Huginn